|
Góður undirbúningur tryggir árangur.
Við ráðleggjum viðskiptavinum okkar að hafa samband áður en vinna hefst við flókin hönnunarverkefni ef einhver óvissa er um tæknilega útfærslu þeirra. Það getur sparað tíma og fyrirhöfn á seinni stigum framleiðslu. Við förum yfir öll verkefni sem fara í gegn hjá okkur með tilliti til tæknilegrar útfærslu þeirra til að tryggja að gögnin uppfylli þær lágmarkskröfur sem við gerum í framleiðsluferli okkar. Með því viljum við líka tryggja að viðskiptavinir okkar hafi möguleika á að laga eða biðja okkur að laga fyrir sig galla sem hugsanlega koma fram við skoðun og gætu rýrt gæði viðkomandi prentunar.
Við gerum orðið ráð fyrir að þau verk sem koma til okkar séu í forritunum ILLUSTRATOR eða FREEHAND í vektorformi og myndir í PHOTOSHOP. Myndir þurfa að vera 250-300lpi í 100% stærð. í RGB CMYK Duotone Gray í TIFF EPS JPEG sniði. Vistið ekki ICC prófíl við myndirnar. Að sjálfsögðu tökum við á móti verkum á nánast hvaða formati sem er, en það getur verið tímafrekt að koma þeim í framleiðsluhæft form.
Notið CMYK ef verkið á að prentast þannig.
Notið Pantone liti í sérlita verkefni.
Notið ekki RGB liti í verkefni sem á að prenta.
Pósitívt letur: má ekki vera minna en 6 puntar
Negatívt letur má ekki vera minna en 8 puntar
Pósitívar línur meiga ekki vera minna en 0,2mm
Negatívar línur meiga ekki vera minna en 0,3mm
Gagnasendingar: Það er ágæt regla að pakka gögnum með t.d. Stuffit eða WinZip áður en þau eru send.
Tölvupóstur - honnun@plastprent.is Misjafnt er hversu stórt viðhengi póstþjónn viðskiptavinarins leyfir því að senda. Póstþjónn Plastprents getur tekið við allt að 50 mb. skjölum.
Við bendum þó á að FTP er mun áreiðanlegri leið fyrir svo stór viðhengi.
FTP í gegnum vafrara ftp://www.plastprent.is:22 Mjög hentugt fyirir allar stærðir skjala. Gestum er veittur takmarkaður aðgangur að gagnaþjónustuinni. En við hvetjum þó viðskiptavini til að hafa samband við okkur og fá úthlutuðu notendanafni. Hægt er að senda póst á honnun@plastprent.is til að fá úthlutuðu notandanafni.
Einnig er hægt að skila inn gögnum á geisladiskum og DVD diskum.
|